UM SONJU
Ég hef þurft að finna mína eigin leið.
Mig langar að deila með þér morgun- og kvöldrútínunum mínum. Þær eru hluti af því hvernig ég hlúi að andlegri heilsu minni og líkamanum og gera dagana mína og næturnar betri.
Ég heiti Sonja og ég er Yin Yoga Nidra kennari. Ég vinn með slökunar- og tónheilunartíma, heilun, svæðameðferð og kenni Engla Reiki heilun.
Þegar ég var 19 ára slasaðist ég alvarlega í bílslysi. Síðan þá hef ég farið í gegnum stórar aðgerðir, andlegt þrot, liðskipti og löng endurhæfingartímabil. Ég hef verið logandi hrædd og stundum efast um hvort ég gæti sinnt aftur því sem ég hafði byggt upp, en ekki leyft mér að gefast upp. Ég hef lagt mig alla fram við að finna mína leið, leið sem hentar mér og mínum líkama.
Ég hélt áfram þótt kraftarnir væru á þrotum.
Svo lærði ég að mýktin gat líka borið mig áfram.
Í dag hreyfi ég mig, byggi upp styrk og gef mér jafnframt tíma fyrir slökun, hugleiðslu og tónheilun. Morgun- og kvöldrútínurnar eru hluti af þeirri leið.